Á myndinni má sjá fulltrúa Advania taka við LS Retail Diamond Partner viðurkenningunni á LS conneXion 2026 ásamt Kristjáni Jóhannssyni forstjóra LS Retail og Carsten Wulff VP LS Retail í Evrópu.

Fréttir - 6. maí 2026

Advania er LS Retail Diamond Partner fjórða árið í röð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Advania hefur nú hlotið viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail.

Viðurkenningin var veitt á árlegri ráðstefnu LS Retail, conneXion, sem að þessu sinni var haldin í Wiesbaden í Þýskalandi og er þetta fjórða árið í röð sem Advania á Íslandi hlýtur þessa viðurkenningu. LS Retail Partner Awards eru veitt til samstarfsaðila sem skara fram úr hvað varðar vöxt, fagmennsku og árangur í innleiðingum lausna LS Retail.

_„_Að halda Diamond Partner stöðu í fjögur ár í röð er sterk staðfesting á þeirri djúpu tæknilegu þekkingu, reynslu og metnaði sem Advania teymið býr yfir. Viðurkenningin endurspeglar auðvitað metnað Advania til að skila lausnum af hæsta gæðaflokki sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Hugi Freyr Einarsson forstöðumaður Business Central hjá Advania um viðurkenninguna.

Verðlaunin voru afhent í Wiesbaden í Þýskalandi.

Verðlaunin voru afhent í Wiesbaden í Þýskalandi.

Stærsta viðurkenningin til samstarfsaðila

Árið 2026 náðu 20 samstarfsaðilar Gold stöðu, 22 Platinum stöðu og aðeins 34 samstarfsaðilar Diamond stöðu, sem er hæsta viðurkenning LS Retail veitir til sinna samstarfsaðila.

LS Retail býr yfir einu stærsta samstarfsaðilaneti innan Microsoft Dynamics samfélagsins með yfir 300 vottaða samstarfsaðila í 157 löndum. Þeir gegna lykilhlutverki í sölu, innleiðingu og þjónustu lausna LS Retail og tryggja þannig staðbundna sérþekkingu og vandaða þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

_„_Gott samstarf við LS Retail og viðskiptavini spilar einnig stóran þátt í viðurkenningunni og hlökkum við til að halda því áfram,“ segir Sigurður Unnar Hauksson vörustjóri LS Retail hjá Advania.

Nánari upplýsingar um LS Retail Partner Awards 2026 og alla þá samstarfsaðila sem hlutu viðurkenningu má finna í tilkynningu frá LS Retail.

Advania er traustur sölu- og þjónustuaðili LS Retail á Íslandi og gegna lausnir LS Retail lykilhlutverki í heildarlausnum Advania fyrir verslunargeirann. Lausnirnar ná yfir allt frá afgreiðslu- og kassakerfum yfir í vefverslanir, sjálfsafgreiðslu, birgða- og innkaupastýringu og aðrar samþættar lausnir sem styðja við nútímalegan verslunarrekstur,  bæði fyrir stórar og smáar verslanir.

Advania er stolt af þessum árangri og þakkar LS Retail fyrir traustið - sem og viðskiptavinum og starfsfólki fyrir framúrskarandi samstarf og árangur sem gerir þetta mögulegt, ár eftir ár.

Fleiri fréttir

Blogg
29.09.2015
Við hjá Advania leggjum fjölmörgum fasteignafélögum til hugbúnað sem einfaldar verulega rekstur þeirra og starfsemi.
Blogg
22.09.2015
Í fyrstu umhverfisskýrslu sem við hjá Dell gáfum út árið 1998 byrjuðum við að setja fram samfélagsstefnu fyrirtækisins.
Blogg
15.09.2015
það var svo sannarlega bæði fjölmennt og góðmennt á Haustráðstefnu Advania sem haldinn var föstudaginn 4. september í Hörpu.
Blogg
09.09.2015
Hópar, eða ´Groups´ er nýjung í Office 365 sem Microsoft hefur nýlega innleitt.
Blogg
02.09.2015
Þegar við hjá Advania, fyrir um níu mánuðum síðan, settumst niður og hófum að undirbúa Haustráðstefnu Advania var markið sett hátt.
Blogg
26.08.2015
Á síðasta ári var Veeam Cloud Connect sett á markað en þessi lausn auðveldar öryggisvistun á gögnum utan gagnavers eða tölvukerfis (off-site) verulega.
Blogg
19.08.2015
Hjá nútíma fyrirtækjum gerir fólk kröfur um um áreiðanleika, einfaldleika og sveigjanleika þegar kemur að upplýsingatækni.
Blogg
23.06.2015
Upplýsingatæknin lék lykilhlutverk á Smáþjóðaleikunum sem ÍSÍ hélt í byrjun júní.
Blogg
16.06.2015
Nýr vefur Tollstjóra var opnaður nýverið og leysir af hólmi þrjá eldri vefi. Tilgangur nýja vefsins er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins.
Blogg
11.06.2015
Lausnir sem halda utan um og auðvelda samskipti fyrirtækja við viðskiptavini verða sífellt mikilvægri.
Blogg
10.06.2015
Eins og fram hefur komið hefur Microsoft valið Advania sem samstarfsaðila ársins, Partner of Year, 2015. Þetta er mikill heiður enda er samkeppnin hörð á þessum markaði.
Blogg
04.06.2015
Notendaráðstefna Oracle, OAUG Collaborate 2015, var haldin í Las Vegas í apríl síðastliðnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.