Kristjana Sunna Erludóttir deildarstjóri þjónustu og ráðgjafar og Ingibjörg Edda Snorradóttir, deildarstjóri hugbúnaðarþróunar ásamt Brynju Baldursdóttur, framkvæmdastjóri InfoMentor á Íslandi og Johan Krantz, forstjóra InfoMentor.

Fréttir - 3. september 2024

InfoMentor kaupir INNU og Völu af Advania

Advania og InfoMentor hafa gengið frá kaupsamningi um kaup InfoMentor á framhaldsskólalausninni INNU og leikskóla- og frístundalausninni Völu. Með kaupunum tekur InfoMentor yfir allar skuldbindingar Advania gagnvart viðskiptavinum þessara lausna og því starfsfólki sem þróar og þjónustar þessar lausnir. Alls munu 12 sérfræðingar Advania færast með lausnunum yfir til InfoMentor en það eru stjórnendur, vörustjórar, og aðrir sérfræðingar í þróunar- og þjónustuteymi.

„Hjá Advania metum við vöru- og þjónustuframboð okkar reglulega til að skerpa á fókus út frá nýjustu tækni og þróun markaðarins. Undanfarin misseri höfum við rýnt stöðu og framtíðarsýn þeirra lausna sem Advania hefur þróað undanfarin ár fyrir nemenda- og skólaumsýslu. Í kjölfar þess tókum við ákvörðun um að stíga út úr því að þróa og viðhalda sértækum lausnum á þessu sviði. Það kom svo í ljós að áhugi væri hjá fjárfestum að kaupa þessar lausnir út úr félaginu og eftir viðræður við aðila á markaðnum var gengið til samninga við InfoMentor. Við sjáum á eftir frábærum vinnufélögum og viðskiptavinum en vitum af þeim í góðum höndum hjá öflugu fyrirtæki,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi.

„Eftir að viðræður hófust á milli InfoMentor og Advania var strax ljóst að þessar lausnir ættu góða samleið við þá vegferð sem InfoMentor er á og tækifæri væru þar til að gera enn betur með því að taka saman höndum. Hjá InfoMentor starfar hópur sérfræðinga sem lifir og hrærist í skólalausnum og hefur víðtæka sérfræðiþekkingu á íslenskum og sænskum markaði. Með þessa þekkingu og þekkingu sérfræðinga skólalausna Advania gefst tækifæri til að halda áfram að þróa öflugar hugbúnaðarlausnir fyrir þessa markaði með hagsmuni nemenda og skólasamfélagsins að leiðarljósi,“ segir Johan Krantz, forstjóri InfoMentor.

Inna er upplýsingakerfi fyrir framhaldsskóla og inniheldur m.a. kennslukerfi og nemendabókhald. Vala er lausn fyrir sveitarfélög sem nær yfir umsýslu leikskóla, skólamat, frístundastarf og vinnuskóla. Hugbúnaðarfyrirtækið InfoMentor var stofnað á Íslandi árið 1990 og er með yfir þriggja áratuga reynslu af rekstri og þróun hugbúnaðar og tæknilausna fyrir leik- og grunnskóla. Fyrirtækið og kerfið hefur þróast mikið á þessum tíma og hefur í dag hátt í milljón daglega notendur á Íslandi og í Svíþjóð. InfoMentor mun halda áfram þróun lausnanna tveggja og vinna náið með viðskiptavinum í að þróa áfram gæða kerfi í takt við þróun og þarfir markaðarins.

Fleiri fréttir

Blogg
04.02.2026
Advania CX Forum er árleg ráðstefna þar sem viðskiptavinir Advania frá öllum Norðurlöndunum koma saman til að fræðast, miðla reynslu og kynnast öðrum notendum Genesys kerfisins. Í ár var engin undantekning, ráðstefnan var einstaklega vel heppnuð, faglega sterk og skemmtileg í senn. Hún skapaði vettvang þar sem sérfræðingar, stjórnendur og tækniaðilar gátu rætt nýjustu lausnir í þjónustutækni og fengið dýpri innsýn í þróunina sem mótar framtíðina.
Blogg
02.02.2026
Ný lög nr. 78/2025 um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar, sem innleiða DORA reglugerð Evrópusambandsins, marka þáttaskil í kröfum til fjármálafyrirtækja og þjónustuaðila þeirra hér á landi. Regluverkið gerir ríkar kröfur um skipulag, skjalfestingu og raunverulegt viðnámsþol upplýsinga og fjarskiptakerfa, með aukinni ábyrgð stjórnenda og skýrari væntingum til þjónustuaðila.
Blogg
29.01.2026
Í dag eru flestir farnir að nota gervigreind, hvort sem það er heima eða í vinnu. Copilot fyrir Microsoft 365 er eitt af þeim gervigreindartólum sem getur gert lífið miklu einfaldara. Hann hjálpar við að skrifa, skipuleggja, finna upplýsingar og klára verkefni hraðar. Flestir byrja á Copilot Chat, en ef þú vilt virkilega fá sem mest út úr Copilot, þá er fulla útgáfan af Copilot málið.
Fréttir
29.01.2026
Advania hefur haldið stöðu sinni sem VMware Cloud Service Provider (VCSP) samstarfsaðili hjá Broadcom, á Íslandi sem og á öllum öðrum markaðsvæðum fyrirtækisins.
Blogg
27.01.2026
Advania er umboðsaðili Airtame á Íslandi  en Airtame hefur í áraraðir verið í fararbroddi þegar kemur að sveigjanlegum, þráðlausum lausnum fyrir fundarherbergi, skólastofur og önnur samvinnurými. Nú hefur fyrirtækið kynnt Airtame 3, sem er stærsta stökk þeirra til þessa.
Blogg
15.01.2026
Gervigreind hefur á undanförnum misserum orðið órjúfanlegur hluti af daglegu vinnuflæði á flestum vinnustöðum. Starfsmenn nýta alls konar tól til að auka afköst, skrifa texta, greina gögn og búa til efni – oft án þess að hugsa sig tvisvar um. Þetta getur verið frábært, því rétt notuð getur gervigreind hjálpað fólki að blómstra í starfi!
Blogg
09.01.2026
Í dag hefur aldrei verið jafn mikilvægt fyrir fyrirtæki að skapa sterkt vörumerki og flott myndrænt efni sem nær til viðskiptavina. Eins og mörg fyrirtæki þekkja nú þegar, er Adobe Creative Cloud Pro besta lausnin í verkið.
Blogg
07.01.2026
Eins og allir sannir nördar vita, er tæknisýningin CES í fullum gangi þessa dagana í Las Vegas. Okkar fólk hjá Dell er vitaskuld á staðnum og hefur nú þegar kynnt tvo verulega spennandi hluti.
Blogg
05.01.2026
Við erum spennt að tilkynna að Advania Ísland hefur fengið staðfestingu frá Broadcom um að við höldum áfram sem viðurkenndur VMware endursöluaðili samkvæmt uppfærðri Broadcom Advantage Partner Program samstarfsáætlun.
Blogg
09.12.2025
Það er gaman að segja frá því að næsta skref í þróun og reiknilíkönum fyrir gervigreind er á leiðinni. Advania kynnti fyrir stuttu NVIDIA DGX Spark vélina sem seldist upp samdægurs, nú er komið að Dell að taka við keflinu.
Blogg
02.12.2025
Í vöruflóru Dell leynist lítið en merkilegt forrit sem þú kannast kannski ekki við. Dell Display and Peripheral Manager (DDPM) er forrit sem gerir þér kleift að stjórna öllum skjáum og jaðartækjum á einum stað. Ef þú hefur ekki skoðað þetta þrælsniðuga forrit, mælum við með að þú gerir það í einum grænum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.