Hólmfríður Rut Einarsdóttir og Þóra Rut Jónsdóttir

Blogg - 13. janúar 2023

Veistu þitt skýjaspor?

Hefur þú velt fyrir þér hvernig stafrænu lausnirnar sem þú notar daglega virka á bakvið tjöldin?

Á heimsvísu hefur fjöldinn af þeim sem nota netið tvöfaldast og netumferð aukist tuttugufalt síðan árið 2010. Á bakvið allar stafrænar lausnir eru gagnaver sem hýsa gögnin og kerfin sem við notum. Öryggis, umhverfisins og kostnaðarins vegna skiptir máli að vita hjá hverjum gögnin og kerfin sem þitt fyrirtæki er að nota eru hýst. Orkuþörf vegna stafrænnar þróunar er sífellt að aukast. Samkvæmt Stockholm Resilience Center hafa stafrænar lausnir möguleika að hjálpa eða hindra skiptunum yfir í endurnýjanlega orku á heimsvísu og draga úr um 30% þeirri heimslosun gróðurhúsalofttegunda sem þarf fyrir 2030.

Líklegt er að þitt fyrirtæki sé með rekstur í mörgum skýjum. Ef fyrirtækið er meðvitað um sín umhverfisáhrif eða er á sjálfbærnivegferð gæti verið tilefni til að skoða hvernig hýsingarumhverfið lítur út. Raforkuverð í heiminum hefur hækkað töluvert undanfarið sem er íþyngjandi fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Fyrirtæki eru einnig í auknum mæli byrjuð að átta sig á umhverfisáhrifum sínum og þá sérstaklega að beina sjónum á að nýta endurnýjanlega orku til að draga úr losun vegna starfseminnar.

Veistu þitt skýjaspor? - Vísir

Hefur þú velt fyrir þér hvernig stafrænu lausnirnar sem þú notar daglega virka á bakvið tjöldin?

Veistu þitt skýjaspor? - Vísir

Í almennu tali eru innviðir og gögn sem eru aðgengileg hvenær sem er í gegnum upplýsingatæknikerfi kölluð skýjalausnir (e. Cloud computing). Flest fyrirtæki blanda í dag saman ólíkum tegundum af þjónustum s.s. eigin hýsingu, hýsingu á vegum innlendra þjónustuaðila og gjarnan þjónustulausnum frá erlendum aðilum á borð við Microsoft og AWS. Ef skýjarekstur er rekinn í gegnum marga aðila getur kostnaður orðið umtalsverður, umhverfisáhrif neikvæð og utanumhald flókið sérstaklega m.t.t. öryggismála.

Samhýsing í almennum skýjaþjónustum gerir fyrirtækjum kleift að hámarka orkunýtingu með því að skala rekstur eftir þörfum. Sem dæmi má nefna að oft er hægt að slökkva tímabundið á þjónustum sem ekki þarf að nálgast t.d. á næturnar og einfalt er að skala niður umhverfi þegar þjónustuþörf dregst saman. Með þessu má draga úr offjárfestingu í vélbúnaði og orkunotkun, sem hefur jákvæðar afleiðingar fyrir umhverfið.

Það skiptir einnig máli hvernig orkunýting er hjá þeim gagnaverum sem átt er í viðskiptum við og hver uppruni orkunnar er. Tegund orkunnar sem gagnaverin nýta fer oft eftir því hvar þau eru staðsett í heiminum. Á Íslandi erum við í sérstöðu þar sem raforkuframleiðsla er af endurnýjanlegum uppruna og sú staðreynd gerir það að verkum að fyrirtæki sem eru með skýið sitt í hýsingu í gagnaverum á Íslandi spara verulega útblástur gróðurhúsalofttegunda vegna þess.

Í sumar var hitamet slegið í röðum um alla Evrópu, einnig á þeim stöðum sem gagnaver eru staðsett. Þetta leiddi til þess að mörg gagnaver í Evrópu þurftu að brúa bilið á milli hitans úti og hitastigs sem er ákjósanlegt fyrir öruggan rekstur á hýsingarbúnaði. Til þess að brúa þetta hitastigsbil þarf að nota búnað og tækni sem er í langflestum tilfellum orkufrekt og í sumum tilfellum þarf að nota vatn til kælingar, jafnvel á þeim stöðum þar sem vatn er af skornum skammti.

Búnaðurinn í gagnaverum hitnar verulega við notkun og því þarf að kæla rýmin þar sem tölvubúnaðurinn er staðsettur. Kæling er bæði veigamikill og órjúfanlegur hluti af starfsemi gagnavera og er sumstaðar allt að 45% af heildarorkunotkun gagnavera sem bæði eykur orkuþörf, kostnað og umhverfisáhrif vegna starfseminnar. Á Íslandi ríkir kaldtemprað úthafsloftslag sem nýtist vel til kælingar á gagnaverum, allt árið um kring. Nýting á útilofti til kælingar er ein af ástæðunum hvers vegna hýsing á gögnum á Íslandi er umhverfisvænni en að hýsa gögn hjá gagnaverum sem staðsett eru í löndum með heitara loftslag.

Samkvæmt greiningum atNorth losar hýsing á Íslandi upp að 98% minna af gróðurhúsalofttegundum heldur en meðal gagnaver í Evrópu sem nota allt að 50% meiri orku en gagnaver á Íslandi.

Margar stofnanir og fyrirtæki leggja kapp á að minnka umfang losunar á gróðurhúsalofttegundum frá starfsemi sinni. Ein leið til þess að kanna hvar hægt er að draga úr losun er til dæmis að athuga hvar gögnin eru hýst og hvort ráð sé að koma þeim í umhverfisvænni hýsingu.

Hvað getur þú gert til þess að komast að því hvar þín gögn eru hýst og hvernig orka er nýtt?

Athugaðu eftirfarandi:

  • Hjá hverjum og hvar er verið að reka kerfin/afrita- og geyma gögnin þín?
  • Eru gagnaverin sem þú ert í viðskiptum við að nýta endurnýjanlega orku?
  • Er möguleiki á að færa hýsinguna í gagnaver sem nýtir einungis endurnýjanleg orku?

Þú getur lesið þér nánar til um málið hér:

Fleiri fréttir

Blogg
04.02.2026
Eftir því sem þróunarteymi vinna meira að gervigreindarlausnum hefur þörfin fyrir öfluga örgjörva og GPU aukist verulega. Til að mæta þessari þörf hafa mörg teymi fært þróunarumhverfi sín yfir í skýjaþjónustur sem sérhæfa sig í HPC og gervigreindarvinnslu. Það er skiljanlegt, skýið býður upp á skjótan aðgang að afli, sveigjanleika og möguleika á að skala upp á stuttum tíma.
Fréttir
04.02.2026
Í dag fer fram ráðstefnudagur hinnar árlegu UTmessu í Hörpu. Á UTmessunni koma saman helstu tæknifyrirtæki landsins til að deila nýjungum, hvetja fólk til að kynnast iðnaðinum og sýna hvað tæknin getur gert fyrir daglegt líf og rekstur fyrirtækja. Þetta er í 16. skipti sem UTmessan er haldin.
Blogg
04.02.2026
Advania CX Forum er árleg ráðstefna þar sem viðskiptavinir Advania frá öllum Norðurlöndunum koma saman til að fræðast, miðla reynslu og kynnast öðrum notendum Genesys kerfisins. Í ár var engin undantekning, ráðstefnan var einstaklega vel heppnuð, faglega sterk og skemmtileg í senn. Hún skapaði vettvang þar sem sérfræðingar, stjórnendur og tækniaðilar gátu rætt nýjustu lausnir í þjónustutækni og fengið dýpri innsýn í þróunina sem mótar framtíðina.
Blogg
02.02.2026
Ný lög nr. 78/2025 um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar, sem innleiða DORA reglugerð Evrópusambandsins, marka þáttaskil í kröfum til fjármálafyrirtækja og þjónustuaðila þeirra hér á landi. Regluverkið gerir ríkar kröfur um skipulag, skjalfestingu og raunverulegt viðnámsþol upplýsinga og fjarskiptakerfa, með aukinni ábyrgð stjórnenda og skýrari væntingum til þjónustuaðila.
Blogg
29.01.2026
Í dag eru flestir farnir að nota gervigreind, hvort sem það er heima eða í vinnu. Copilot fyrir Microsoft 365 er eitt af þeim gervigreindartólum sem getur gert lífið miklu einfaldara. Hann hjálpar við að skrifa, skipuleggja, finna upplýsingar og klára verkefni hraðar. Flestir byrja á Copilot Chat, en ef þú vilt virkilega fá sem mest út úr Copilot, þá er fulla útgáfan af Copilot málið.
Fréttir
29.01.2026
Advania hefur haldið stöðu sinni sem VMware Cloud Service Provider (VCSP) samstarfsaðili hjá Broadcom, á Íslandi sem og á öllum öðrum markaðsvæðum fyrirtækisins.
Blogg
27.01.2026
Advania er umboðsaðili Airtame á Íslandi  en Airtame hefur í áraraðir verið í fararbroddi þegar kemur að sveigjanlegum, þráðlausum lausnum fyrir fundarherbergi, skólastofur og önnur samvinnurými. Nú hefur fyrirtækið kynnt Airtame 3, sem er stærsta stökk þeirra til þessa.
Blogg
15.01.2026
Gervigreind hefur á undanförnum misserum orðið órjúfanlegur hluti af daglegu vinnuflæði á flestum vinnustöðum. Starfsmenn nýta alls konar tól til að auka afköst, skrifa texta, greina gögn og búa til efni – oft án þess að hugsa sig tvisvar um. Þetta getur verið frábært, því rétt notuð getur gervigreind hjálpað fólki að blómstra í starfi!
Blogg
09.01.2026
Í dag hefur aldrei verið jafn mikilvægt fyrir fyrirtæki að skapa sterkt vörumerki og flott myndrænt efni sem nær til viðskiptavina. Eins og mörg fyrirtæki þekkja nú þegar, er Adobe Creative Cloud Pro besta lausnin í verkið.
Blogg
07.01.2026
Eins og allir sannir nördar vita, er tæknisýningin CES í fullum gangi þessa dagana í Las Vegas. Okkar fólk hjá Dell er vitaskuld á staðnum og hefur nú þegar kynnt tvo verulega spennandi hluti.
Blogg
05.01.2026
Við erum spennt að tilkynna að Advania Ísland hefur fengið staðfestingu frá Broadcom um að við höldum áfram sem viðurkenndur VMware endursöluaðili samkvæmt uppfærðri Broadcom Advantage Partner Program samstarfsáætlun.
Blogg
09.12.2025
Það er gaman að segja frá því að næsta skref í þróun og reiknilíkönum fyrir gervigreind er á leiðinni. Advania kynnti fyrir stuttu NVIDIA DGX Spark vélina sem seldist upp samdægurs, nú er komið að Dell að taka við keflinu.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.