Ef þú getur sannreynt vandamálið aukast líkurnar á árangri
Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Tæknital ræðir Kristján Kristjánsson frumkvöðull og framkvæmdastjóri 50skills um ferilinn, lærdóm úr frumkvöðlastarfi og hraða þróun gervigreindar í íslensku atvinnulífi.
Í þættinum fer Kristján yfir hvernig hann hóf feril sinn í íslenska sprotaumhverfinu og kom að verkefnum á borð við Innovit og Icelandic Startups, sem höfðu það markmið að efla nýsköpun á Íslandi. Á þeim tíma voru fáar fyrirmyndir fyrir frumkvöðla, en áhersla var lögð á að hvetja fólk til að skapa eigin verðmæti frekar en að fara hefðbundnar leiðir.
Eitt eftirminnilegasta verkefnið sem Kristján segir frá er þegar hann og félagar hans seldu ösku úr Eyjafjallajökli til ferðamanna sem sátu fastir erlendis.
„Við seldum bara eina krukku á 1.000 kall,“ útskýrir Kristján. „Og á fyrstu tveimur tímunum þá seldum við fyrir nokkur hundruð þúsunda.“
Í þættinum leggur Kristján einnig ríka áherslu á að frumkvöðlar og fyrirtæki þurfi fyrst og fremst að skilja þarfir viðskiptavina. Að hans mati er það lykilatriði í að byggja upp lausnir sem raunverulega skila árangri.
„Það var yfirleitt betra að vita hvort það sem þú ert að selja sé að fara að leysa eitthvað vandamál fyrir kaupandann.“
Hann bendir á að góðar hugmyndir einar og sér dugi skammt ef þær byggja ekki á skýrri þörf eða raunverulegu vandamáli. Því skipti miklu máli að prófa hugmyndir snemma og fá staðfestingu á því að markaður sé til staðar áður en farið er í frekari þróun.
Viðtalið færist auðvitað að gervigreind og áhrifum hennar á vinnustaði. Kristján telur tækniþróunina hafa grundvallaráhrif á framleiðni og hvernig verkefni eru unnin.
„Gervigreindin er að skrifa kóðann en þú ert í staðinn að lesa yfir kóða allan daginn.“
Hann bendir einnig á að lægri kostnaður við þróun muni opna ný tækifæri.
„Þegar kostnaðurinn við að búa eitthvað til lækkar… þá fer allt í einu að vera lógískt að gera eitthvað sem var ekki hægt að gera áður.“
Þátturinn gefur innsýn í hvernig frumkvöðlar hugsa, hvernig tilviljanir og tilraunir geta orðið að tækifærum, og hvers vegna gervigreind mun gegna lykilhlutverki í framtíð fyrirtækja og vinnustaða.