Blogg - 17. nóvember 2021

Um mikilvægi gagnaafritunar

Tillögur að því hvernig búa megi um hnútana svo greiðlega gangi að endurheimta gögn sem hafa glatast.

Tillögur að því hvernig búa megi um hnútana svo greiðlega gangi að endurheimta gögn sem hafa glatast. 

Öryggissérfræðingar Advania tóku saman.

Helstu ástæður fyrir því því að gögn glatast eru allt frá mannlegum mistökum, bilunar á búnaði, innbrotum og náttúruhamfara.

Að geyma afrit af gögnum á utanáliggjandi hörðu eða nettengdum diski er góð vörn gegn bilun á tölvubúnaði. 

Fyrir smærri stofnanir og einstaklinga getur Microsoft OneDrive verið góður kostur þar sem það er með innbyggða öryggisafritun og endurskoðunarferil. Hins vegar, til að tryggja eins góða vernd og hægt er, er best að hafa mörg eintök af mikilvægum skrám. Fyrir stór og smá fyrirtæki, er best að tala við hýsingaraðila um Office 365 öryggisafritunarþjónustu, sem tekur öryggisafrit af OneDrive, SharePoint og öðrum Office 365 gögnum til að auka öryggi.

Fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir sem þurfa umfangsmeiri afritunarþjónustu þá eru hér nokkrar tillögur um hvernig setja megi hlutina upp til að hámarka hraða á endurheimt gagna. Þessir punktar nýtast annað hvort við uppsetningu á þínum vinnustað eða í samtali við þjónustufyrirtækið sem hýsir umhverfi vinnustaðarins. Mikilvægt er að fullvissa sig um að hlúð sé vel að öryggi og vernd innviða á þínum vinnustað. Ef þinn þjónustuaðili er ekki með þetta allt á hreinu, komdu þá til Advania. 

 

Hvað skal gera?

  • Fyrsta skrefið er að velja áreiðanlega öryggisafritunarlausn sem geymir öryggisafritið og pakkar skránum í skjalasafn sem er aðskilið frá skrám sem verið er að afrita. Vert er að athuga hvort kerfið styðji dulkóðun á öryggisafritum sem er einnig mjög mikilvægt öryggisatriði.
  • Ef þú geymir öryggisafrit á sama stað og skrárnar sem verið er að afrita, og eitthvað kemur fyrir þar, svo sem eldsvoði, náttúruhamfarir eða innbrot, þá tapast bæði upprunalega- og öryggisafritið. Best er að geymslustaður fyrir öryggisafrit sé ekki í sama bæjarfélagi. Veldu annað svæði þar sem ólíklegt er að sami atburður geti haft áhrif á báðum stöðum. Þetta þýðir yfirleitt að geyma öryggisafritið í öðrum landshluta; ef skrárnar þínar eru geymdar á Suðurlandi, geymdu öryggisafritið á Norðurlandi.
  • Gakktu úr skugga um að aðgangsstýringar að gögnunum séu réttar.
  • Sá sem hefur aðgang að öryggisafritunarkerfinu og getur endurheimt öryggisafrit eða jafnvel bara skoðað eða gert breytingar á öryggisafritunum, ætti ekki að hafa aðgang að neinu kerfanna sem verið er að taka öryggisafrit af.
  • Sá sem hefur aðgang að skjölum sem verið er að afrita, ætti ekki að hafa aðgang að öryggisafritunarkerfunum eða sjálfum öryggisafritunum.
  • Kerfisstjóri afritunar ætti ekki að geta fengið aðgang að neinum skrám í frumgögnum, þeir eiga að geta séð skráarheiti, slóðir og önnur lýsigögn en ekki efnið.
  • Kerfi sem eru enduruppsett frá afriti ætti að hafa nákvæmlega sömu heimildir og upprunalegu gögnin.
  • Gakktu úr skugga um að ítarleg skjölun aðgerða sé virk á öryggisafritunarkerfinu og að fylgst sé með óeðlilegum/óleyfilegum atvikum í skjölun.
  • Prófaðu öryggisafrit reglulega. Þú veist ekki fyrir víst að þú getir endurheimt öryggisafrit fyrr en þú hefur prófað að endurheimta það.
  • Gakktu úr skugga um að tíðni afritunar sé í takt við tíðnina breytinga á gögnunum þínum. Þ.e. hugsaðu um hversu mikla vinnu þú ert tilbúin að vinna upp og taktu öryggisafrit samkvæmt því.
  • Ef aðeins er tekið öryggisafrit einu sinni í viku glatast eins vikna virði breytinga, ef þú þarft að endurheimta öryggisafrit. Dagleg öryggisafrit að kvöldi eða nóttu eru mjög algeng, þar sem það þýðir að þú tapar aðeins nokkurra klukkustunda virði af breytingum. Flest afritunarkerfi komast í gegnum heilt öryggisafrit á einni nóttu.
  • Þetta er venjulega takmarkað við hversu langan tíma það tekur að framkvæma hverja afritun.
  • Ódýrar lausnir eru yfirleitt takmarkaðri og hægvirkari og því þarf að greiða meira fyrir hraðvirk öryggisafritunarkerfi.

Fleiri fréttir

Blogg
07.12.2021
Jólahátíðin er gósentíð netsvindlara sem nýta sér stress og tímaþröng fólks til að leika á það og svíkja út úr því peninga. Hér er fjallað um algengar hættur og það sem ber að varast í netverslun.
Blogg
01.12.2021
Með því að hafa þessa punkta að leiðarljósi getur hver sem er haldið glæsilegan viðburð sem lifir áfram í stafrænum heimi um óákveðinn tíma, náð til fleiri þátttakenda, lækkað kostnað, minnkað kolefnissporið og aukið virði viðburðarins fyrir gesti.
businesscentral.advania.is, Blogg
29.11.2021
Fyrir fyrirtæki sem eru að velta fyrir sér næstu skrefum í uppfærslu á eldri NAV útgáfum þá mælum við hjá Advania eindregið með því að Business Central skýjaútgáfan sé skoðuð, bæði m.t.t. þess hagræðis sem skapast í kringum rekstur og viðhald kerfisins en sömuleiðis m.t.t. þeirra gátta sem opnast fyrir samþættingu við aðrar virðisaukandi lausnir og þjónustu í Microsoft skýinu.
Blogg
17.11.2021
Tillögur að því hvernig búa megi um hnútana svo greiðlega gangi að endurheimta gögn sem hafa glatast.
Blogg
10.11.2021
Með aukinni tækni hafa fyrirtæki byrjað að geta safnað gögnum um alla hluti rekstursins. Flest fyrirtæki safna gögnum en það skiptir máli hvernig unnið er með þau.
Blogg
27.10.2021
Tölvuárásir verða æ algengari og því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að huga að öryggi þeirra viðskiptakerfa sem halda um reksturinn.
Fréttir
21.10.2021
Advania á Íslandi hlaut í dag samstarfsverðlaun frá Dell Technologies. Erlend fyrirtæki sækjast í auknum mæli eftir sérfræðiþekkingu Advania og þjónustu í íslenskum gagnaverum.
Fréttir
14.10.2021
Tölvuárásir af ýmsum toga hafa aukist á íslensk fyrirtæki á undanförnum mánuðum. Sem liður í öryggisátaki í október stóð Advania fyrir opnum fræðslufundi um algengar árásir.
Fréttir
05.10.2021
Í dag kynnti Microsoft nýtt stýrikerfi, Windows 11, sem er endurhannað með framleiðni, sköpun og þægindi í huga.
Blogg
04.10.2021
Á undanförnum mánuðum hafa tölvuárásir af ýmsum toga aukist á íslensk fyrirtæki. Að þeim sökum hefur Advania ákveðið að varnir við slíkum árásum séu ekki lengur valkvæðar viðskiptavinum heldur skylda.
Fréttir
30.09.2021
Kaup Advania á norræna upplýsingatæknifyrirtækinu Visolit eru gengin í gegn.
Blogg
23.09.2021
Undanfarið hafa Íslendingar fundið fyrir netárásum og vírusum af ýmsu tagi. Helst hefur verið fjallað um DDoS-árásir en nýverið hafa íslensk fyrirtæki einnig orðið fyrir gagnagíslingu. Hér verður fjallað um hvernig hægt er að verjast slíkum árásum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.