Uppfært: 20.01.2025 - Greinin birtist upphaflega: 02.10.2025

Er þinn vinnustaður enn að nota Windows 10?

Bragi Gunnlaugsson
Sérfræðingur, innviðalausnum Advania

Microsoft hefur tilkynnt að núverandi útgáfa af Windows 10 sé sú síðasta sem verður gefin út. Öllum stuðningi við stýrikerfið verður hætt 14. október næstkomandi. Ef vinnustaðir vilja tryggja öryggi sitt, þurfa þeir að uppfæra í Windows 11 fyrir þann tíma.

Windows 10 hefur staðið vaktina í PC vélum í fjöldamörg ár, en nú styttist í að þetta víðfræga stýrikerfi setjist í helgan stein. Síðla árs 2025 verða öryggisuppfærslur ekki lengur gefnar út nema keypt sé sérstaklega árs framlenging og því mikilvægt fyrir vinnustaði að huga að uppfærslu í Windows 11. Þessa nýjasta útgáfa stýrikerfisins er ekki bara nútímaleg og ótrúlega þægileg í notkun, heldur er Windows 11 hratt að verða staðallinn í PC heiminum.

Get ég uppfært í Windows 11?

Flestar tölvur með áttundu kynslóð Intel örgjörva og yngri geta uppfært úr Windows 10. Það er ekki ólíklegt að ef vélin þín styður Windows 11, að hún sé nú þegar búin að uppfæra sig. Intel setti upp prýðilegar leiðbeiningar á vefsíðu sinni þar sem notendur geta kannað hvort tölva sé uppfæranleg:

Hvað ef ég get ekki uppfært tölvuna mína?

Ef tölvan er ekki uppfæranleg, gæti verið kominn tími til að setja hana á eftirlaun og endurnýja tölvukostinn. Við mælum sérstaklega með Dell Pro 14, splunkunýrri tölvulínu sem er að slá í gegn

404

Þarftu aðstoð við að endurnýja?

Sérfræðingar Advania eru boðnir og búnir að aðstoða vinnustaði við að finna rétta búnaðinn. Við getum tekið gamlan búnað upp í nýjan og sjáum til þess að allt endi í réttri endurvinnslu. Í vefverslun Advania má finna réttu græjurnar í verkið en ef þig vantar aðstoð, erum við alltaf til staðar.

Fleiri fréttir

Fréttir
12.09.2024
Á Alþjóðlegum degi geðheilbrigðis, 10. október, standa Advania og Mental ráðgjöf fyrir ráðstefnu ætlaðri áhugasömum stjórnendum og öðrum fulltrúum vinnustaða. Yfirskrift ráðstefnunnar er Geðheilbrigði á vinnustað.
Fréttir
11.09.2024
Microsoft hefur tilkynnt þá samstarfsaðila sem komast í hópinn 2024-2025 Microsoft Business Applications Inner Circle. Advania er í þessum virta hóp samstarfsaðila þriðja árið í röð.
Blogg
10.09.2024
Tölvur með innbyggðu 5G módemi opna fyrir ótal möguleika á vinnustöðum. Með nýjustu tækni upplifir starfsfólk alvöru sveigjanleika með alvöru öryggi. Sjáðu fimm helstu ástæður þess að þinn vinnustaður ætti að vera að skoða fartölvur með 5G.
Fréttir
09.09.2024
Fullt var út úr dyrum á aðaldagskrá þrítugustu Haustráðstefnu Advania í Silfurbergi Hörpu á fimmtudag. Ægir Már Þórisson forstjóri Advania steig fyrstur á svið eftir að Michael Dell, stofnandi og forstjóri Dell Technologies, ávarpaði ráðstefnuna frá höfuðstöðvum fyrirtækisins og þakkaði fyrir samstarfið við Advania sem nær yfir hartnær 30 ár.
Blogg
06.09.2024
Þrítugasta Haustráðstefna Advania fór fram dagana 4. og 5. september. Í tilefni af afmæli ráðstefnunnar litum við í baksýnisspegilinn.
Fréttir
05.09.2024
Vefhluti þrítugustu Haustráðstefnu Advania fór fram í gær og í dag fer aðaldagskráin fram fyrir fullum sal í Hörpu. Í Silfurbergi mun fjöldi erlendra og innlendra fyrirlesara stíga á svið og verður áhersla lögð á gervigreind, öryggismál og sjálfbærni. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar í ár er Nina Schick.
Fréttir
03.09.2024
Advania og InfoMentor hafa gengið frá kaupsamningi um kaup InfoMentor á framhaldsskólalausninni INNU og leikskóla- og frístundalausninni Völu. Með kaupunum tekur InfoMentor yfir allar skuldbindingar Advania gagnvart viðskiptavinum þessara lausna og því starfsfólki sem þróar og þjónustar þessar lausnir. Alls munu 12 sérfræðingar Advania færast með lausnunum yfir til InfoMentor en það eru stjórnendur, vörustjórar, og aðrir sérfræðingar í þróunar- og þjónustuteymi.
Blogg
02.09.2024
Þrítugasta Haustráðstefna Advania fer fram í þessari viku, dagana 4.-5. september. Magnea Gestrún Gestsdóttir verkefnastjóri Haustráðstefnunnar fer hér yfir hvað ráðstefnan hefur upp á að bjóða og hvernig er hægt að hámarka upplifunina.
Blogg
30.08.2024
Eins og á öllum alvöru hátíðum þá verður boðið upp á hliðardagskrá á Haustráðstefnu Advania sem er með svokölluðu “off-venue” fyrirkomulagi sem Íslendingar þekkja svo vel. Frítt er á viðburðina en við biðjum þig að skrá þig svo við séum viss um að húsið nái að rýma alla. Þó við séum á hliðardagskrá þýðir það ekki að það séu minni rokkstjörnur sem stíga þar á svið miðað við aðalsviðið. Við erum með allt frá yfirkerfisfræðingum til forstjóra sem ætla að kafa á dýptina og svara spurningum áhorfenda í sal. Að sjálfsögðu verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar enda erum við að ræsa eldsnemma um morguninn í mörgum tilfellum.
Fréttir
28.08.2024
Nú er aðeins vika í þrítugustu Haustráðstefnu Advania. Yfir þrjátíu fyrirlesarar stíga á svið á vefráðstefnunni 4. september og á aðaldagskránni í Hörpu 5. september. Einnig bjóðum við upp á hliðarviðburði þessa daga sem eru opnir öllum sem skrá sig og þarf ekki að eiga miða á ráðstefnuna til að mæta. Hægt er að kynna sér alla dagskrána á vef ráðstefnunnar.
Blogg
27.08.2024
Haustráðstefna Advania nálgast óðfluga. Fjöldinn allur af fríum hliðarviðburðum er á dagskrá í kringum ráðstefnuna - þar á meðal alveg gríðarlega spennandi fyrirlestraröð á vegum Dell og NVIDA.
Blogg
22.08.2024
Það hefur aldrei verið betri tími en núna til að stafrænivæða skólastofuna.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.