Blogg - 30. apríl 2026

Ný stilling í Copilot sem þú ættir að slökkva á

Stefán Ingi Árnason
arkitekt í netöryggi hjá Skjaldarteymi Advania

Ný stilling sem Microsoft hefur nú sjálfkrafa virkjað hjá hjá öllum Copilot notendum innan Evrópu hefur áhrif á hvar gagnaúrvinnsla gervigreindartólsins fer fram. Ég ráðlegg fólki að slökkva á þessari stillingu.

Frá og með 17. apríl 2026 hefur Microsoft sjálfkrafa kveikt á eiginleika sem kallast „Flex Routing“ í öllum Copilot umhverfum í Evrópu. Á álagstímum sendir Copilot nú gervigreindarvinnslu á netþjóna utan Evrópu til að halda svartíma stöðugum. Vistuð gögn eins og tölvupóstur, skrár og svo framvegis verða áfram innan evrópskar lögsögu, en vinnsla gagna getur átt sér stað utan Evrópu.

Hvað þýðir breytingin?

Copilot fyrir Microsoft 365 er spennandi tól sem nýtir krafta gervigreindar til að hnýta saman máltækni og gagnabanka á gagnlegan hátt og efla mátt starfsfólks. Vinsældir Copilot eru gríðarlegar, en þessi aukna notkun varð til þess að Microsoft hefur fært ákveðna úrvinnslu á gögnum út fyrir Evrópu á álagstímum.

Copilot hefur vaxið það ört að Microsoft er að eiga í erfiðleikum með að anna eftirspurninni sem hefur áhrif á álagstímum. Einhverjir notendur upplifa þá hægari úrvinnslu og var því farið þessa leið til að reyna að bæta notendaupplifunina.

Hvað þýðir þetta fyrir notendur?

Þetta snýst í rauninni um GDPR, því ef fyrirtækið þitt hefur nú þegar gefið út notkunarskilmála á gagnavinnslu, þarf mögulega að endurskoða einhver atriði í skilmálanum ef þið ætlið að halda þessari stillingu á.

Það sem er að færast utan Evrópu með þessari stillingu er gagnavinnslan sem á sér stað þegar gervigreindarmódel álykta eða vinna úr kvaðningu (e. prompt) frá þér og koma með svar.

Við vonum auðvitað að Microsoft sé að vinna hratt í því að byggja upp fleiri gagnaver í Evrópu til að anna þessari miklu eftirspurn þegar kemur að gervigreind.

Taka skal fram að þessi stilling er ekki GDPR brot, því gögnin sjálf eru ekki að flytjast út fyrir Evrópu, eingöngu úrvinnslan.

Mín ráðlegging er samt sú að fólk afvirki þessa stillingu. Þeir einu sem ættu að íhuga að hafa þessa stillingu á, eru þeir sem eru að upplifa hægagang innan Copilot og þurfa snarpari svör. Þá þarf samt að vera meðvitaður um þessa breytingu á úrvinnslunni.

Hvernig er hægt að breyta þessu?

Notendur geta valið að breyta stillingunni til baka og slökkva þannig á Flex Routing svo öll gagnavinnsla eigi sér stað innan Evrópu líkt og áður, á kostnað svartíma þjónustunnar á álagstímum.

Það er ótrúlega einfalt og fljótlegt að slökkva á þessari stillingu og sömuleiðis að breyta svo aftur til baka ef upplifunin af því er ekki góð.

  1. Skráðu þig inn í Microsoft 365 admin center sem stjórnandi með hlutverkið AI Administrator.
  2. Farðu í Copilot → Settings → View all → Flex routing during peak load periods.
  3. Ef þú vilt ekki leyfa flex routing, veldu Do not allow flex routing (Ekki leyfa flex routing). Ef þessi valkostur er valinn mun LLM-úrvinnsla fara fram innan gagnamarka ESB, jafnvel á tímum mikils álags.
    Öll skuldbinding Microsoft 365 varðandi gagnavinnslu og staðsetningu gagna (e. data residency) halda áfram að gilda.
  4. Ef þú vilt leyfa breytinguna á að vera hakað við Allow flex routing during periods of peak load  (Leyfa flex routing á tímum mikils álags).
    Þessi stilling heimilar að LLM-úrvinnsla (e. inferencing) og geymsla á tengdum dulnefndum (e. pseudonymized) gögnum geti farið fram utan gagnamarka ESB á tímabilum þar sem álag er mest. Samkvæmt upplýsingum frá Microsoft eru slík tímabil yfirleitt í skamman tíma og ekki samfelld.

Microsoft Copilot er frábært gervigreindartól sem nýtir þá þekkingu sem er til staðar til að auka framleiðni þeirra sem nýta tólið. Copilot getur sparað þér tíma og auðveldað vinnuflæði með aðstoð við hin ýmsu verkefni, hvort sem það er textagerð, gagnavinnsla, kynningar eða önnur verkefni. Það hefur ekki breyst. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar.

Fleiri fréttir

Fréttir
15.02.2024
Í gær fór fram morgunverðarfundur um gervigreind í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni. Einnig var sýnt var frá viðburðinum í gegnum streymi á starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri.
Blogg
08.02.2024
Á dögunum hélt Advania samsteypan Nordic CX Forum í annað sinn og að þessu sinni var það haldið í Kaupmannahöfn í Danmörku.
Viðburðir
31.01.2024
Sjáðu upptökuna: Á þessum morgunverðarfundi fórum við um víðan völl varðandi gervigreind og hagnýta notkun hennar.
Blogg
29.01.2024
Dell kynnir til leiks fyrsta 40 tommu 5K skjáinn í heimi sem er vottaður fyrir fimm stjörnu þægindi fyrir augu af TUV Rheinland®.
Blogg
22.01.2024
Nú þegar gögn og hugbúnaður fyrirtækja er geymdur í skýi þarf að huga að hvernig best að að skipuleggja umhverfið til að halda kostnaði niðri og tryggja öryggi.
Fréttir
16.01.2024
Copilot fyrir Microsoft 365 er nú í boði fyrir allar stærðir fyrirtækja og er enginn lágmarksfjöldi sæta.
Viðburðir
15.01.2024
Á þessum morgunverðarfundi fengu þátttakendur að kynnast Power Platform frá Microsoft og heyrðu hvernig er hægt að nýta sér mismunandi tól innan þess.
Fréttir
11.01.2024
Advania lauk í haust uppsetningu á nýju gagnaveri á Akureyri í samstarfi við atNorth. Gagnaverið var hannað sérstaklega í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til gagnaöryggis með möguleika á speglun milli landshluta.
Fréttir
10.01.2024
Sylvía Rut Sigfúsdóttir hefur verið ráðin til að stýra samskipta- og kynningarmálum Advania á Íslandi.
Fréttir
13.12.2023
Nú er komið að því að eldri áskriftaleiðir skýjaleyfa hjá Microsoft renna sitt skeið. Eftir 11. janúar 2024 byrjar Microsoft sjálfvirkt að flytja eldri leyfi yfir á NCE áskriftaleiðina.
Blogg
06.12.2023
Microsoft hefur tilkynnt að núverandi útgáfa af Windows 10 sé sú síðasta sem verður gefin út. Öllum stuðningi við stýrikerfið verður hætt 14. október næstkomandi. Ef vinnustaðir vilja tryggja öryggi sitt, þurfa þeir að uppfæra í Windows 11 fyrir þann tíma.
Blogg
24.11.2023
Margir vinnustaðir eru farnir að huga að gervigreind í sinni vinnu. En hver ættu fyrstu skrefin að vera í gervigreindarferðalaginu?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.