Ráðstefnan DynamicsMinds, Portorož í Slóveníu
F&O - 5.2.2026 16:00:39Ráðstefna Dynamic Minds
Þann 25.-27. maí næstkomandi verður haldin ráðstefnan DynamicsMinds í Portorož í Slóveníu. Ráðstefnudagskráin er einstaklega glæsileg og má segja að hún sé í líkingu við þær notendaráðstefnur sem voru áður á dagskrá fyrir Covid.
Gunnur Jónsdóttir
Forstöðumaður, Viðskiptalausnir
Ráðstefnan býður uppá dagskrá tengda Dynamics 365 F&O, Power Platform og Business Central
DynamicsMinds er glæsileg notendaráðstefna fyrir Dynamics 365 og Power Platform. Á ráðstefnunni verða yfir 1.000 þátttakendur, 200+ fræðsluerindi, 190+ fyrirlesarar og fjölbreyttur hópur samstarfsaðila víðs vegar að úr BizApps-heiminum.
Ráðstefnan er frábær vettvangur til að efla þekkingu á Dynamics 365 Finance & Operations, miðla reynslu, tengjast sérfræðingum og sjá nýjustu lausnir á markaðnum í beinni. Áhersla er lögð á samvinnu, innblástur og að styrkja tengsl innan Dynamics-samfélagsins.
Við hjá Advania munum senda okkar eigið teymi á staðinn til að fylgjast með nýjustu straumum, taka þátt í umræðum og koma heim með innsýn sem nýtist beint í ráðgjöf, þjónustu og innleiðingar í Dynamics 365 F&O.
Við hvetjum alla áhugasama til að kynna sér ráðstefnuna og taka þátt.