Eva Rut Bernhöft Reynisdóttir opnaði viðburðinn. Mynd/Hörður Sveinsson

Fréttir - 9. september 2026

Ungt fólk í tækni kom saman í höfuðstöðvum Advania

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Við hófum Haustráðstefnuvikuna á skemmtilegum og fræðandi viðburði fyrir ungt fólk í tækni í samstarfi við Dell Technologies og NVIDIA.

Á viðburðinum steig á svið ungt fólk í tækni sem veitti áhorfendum innblástur fyrir veturinn fram undan.

Eva Rut Bernhöft Reynisdóttir frá Evolv hjá Advania, Sveinn Sigurður Jóhannesson frá GreenFish og Málfríður Anna Eiríksdóttir frá Veitum sýndu hversu magnaða hluti er hægt að gera með gervigreind og hvað það er ótrúlega skemmtilegt og spennandi að starfa í tækni.

Viðburðurinn fór fram í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni og fengu háskólanemar þar forsmekk af umræðunum sem munu setja svip sinn á Haustráðstefnu Advania á morgun í Hörpu.

Hörður Sveinsson ljósmyndari Advania fangaði stemninguna.

 Sveinn Sigurður Jóhannesson sagði frá Greenfish ævintýrinu. Mynd/Hörður Sveinsson

Sveinn Sigurður Jóhannesson sagði frá Greenfish ævintýrinu. Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Málfríður Anna Eiríksdóttir lokaði viðburðinum. Mynd/Hörður Sveinsson

Málfríður Anna Eiríksdóttir lokaði viðburðinum. Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Fleiri fréttir

Blogg
01.12.2021
Með því að hafa þessa punkta að leiðarljósi getur hver sem er haldið glæsilegan viðburð sem lifir áfram í stafrænum heimi um óákveðinn tíma, náð til fleiri þátttakenda, lækkað kostnað, minnkað kolefnissporið og aukið virði viðburðarins fyrir gesti.
businesscentral.advania.is, Blogg
29.11.2021
Fyrir fyrirtæki sem eru að velta fyrir sér næstu skrefum í uppfærslu á eldri NAV útgáfum þá mælum við hjá Advania eindregið með því að Business Central skýjaútgáfan sé skoðuð, bæði m.t.t. þess hagræðis sem skapast í kringum rekstur og viðhald kerfisins en sömuleiðis m.t.t. þeirra gátta sem opnast fyrir samþættingu við aðrar virðisaukandi lausnir og þjónustu í Microsoft skýinu.
Blogg
17.11.2021
Tillögur að því hvernig búa megi um hnútana svo greiðlega gangi að endurheimta gögn sem hafa glatast.
Blogg
10.11.2021
Með aukinni tækni hafa fyrirtæki byrjað að geta safnað gögnum um alla hluti rekstursins. Flest fyrirtæki safna gögnum en það skiptir máli hvernig unnið er með þau.
Blogg
27.10.2021
Tölvuárásir verða æ algengari og því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að huga að öryggi þeirra viðskiptakerfa sem halda um reksturinn.
Fréttir
21.10.2021
Advania á Íslandi hlaut í dag samstarfsverðlaun frá Dell Technologies. Erlend fyrirtæki sækjast í auknum mæli eftir sérfræðiþekkingu Advania og þjónustu í íslenskum gagnaverum.
Fréttir
14.10.2021
Tölvuárásir af ýmsum toga hafa aukist á íslensk fyrirtæki á undanförnum mánuðum. Sem liður í öryggisátaki í október stóð Advania fyrir opnum fræðslufundi um algengar árásir.
Fréttir
05.10.2021
Í dag kynnti Microsoft nýtt stýrikerfi, Windows 11, sem er endurhannað með framleiðni, sköpun og þægindi í huga.
Blogg
04.10.2021
Á undanförnum mánuðum hafa tölvuárásir af ýmsum toga aukist á íslensk fyrirtæki. Að þeim sökum hefur Advania ákveðið að varnir við slíkum árásum séu ekki lengur valkvæðar viðskiptavinum heldur skylda.
Fréttir
30.09.2021
Kaup Advania á norræna upplýsingatæknifyrirtækinu Visolit eru gengin í gegn.
Blogg
23.09.2021
Undanfarið hafa Íslendingar fundið fyrir netárásum og vírusum af ýmsu tagi. Helst hefur verið fjallað um DDoS-árásir en nýverið hafa íslensk fyrirtæki einnig orðið fyrir gagnagíslingu. Hér verður fjallað um hvernig hægt er að verjast slíkum árásum.
Blogg
06.09.2021
Þar sem farið er að styttast í þessa rafrænu veislu, fannst okkur tilvalið að renna yfir hagnýt ráð sem gott er að hafa í huga.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.