Líf og fjör var á ráðstefnunni í Stokkhólmi
Blogg - 16.2.2023 16:08:42Advania Nordic CX Forum haldið í fyrsta sinn
Á dögunum hélt Advania í fyrsta skiptið Nordic CX Forum í Stokkhólmi í Svíþjóð. Tilgangur viðburðarins var að deila sérfræðiþekkingu og skapa tengslanet meðal viðskiptavina okkar sem nota Genesys Cloud á Norðurlöndunum.
Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna
Genesys er leiðandi lausn fyrir samskiptaver sem annast allar samskiptaleiðir fyrirtækja í einu viðmóti þjónustufulltrúans.
Eftir hádegi sýndu Indicate me og Google hvernig gervigreind eflir Geneysis kerfið enn frekar. Til að mynda Google Contact Center Ai. Að lokum var erindi frá Shelf sem er þekkingartól sem notar gervigreind til að lesa þekkingarskjöl fyrirtækja og byggja upp Q&A síður fyrir innri eða ytri notkun. Shelf býður einnig upp á frábæra tengingu við Genesys með Agent Assist sem kemur sjálfkrafa með tillögur á greinum eða svörum fyrir starfsmenn samskiptavera í samskiptum við viðskiptavini.
Á milli erinda var kaffispjall eða „fika“ eins og Svíarnir kalla þetta. Þar sýndu sérfræðingar möguleikana í kerfinu og svöruðu spurningum, en einnig var hægt að nýta tímann í að efla tengslanetið. Kvöldið endaði svo með frábærum mat og skemmtun. Hugmyndin er að ráðstefnan flakki á milli landa og er kosið hverju sinni um land. Hver veit nema að Ísland verði fyrir valinu á næsta ári. Þeim fer ört fjölgandi fyrirtækjunum sem nota Genesys fyrir sín samskiptaver og efumst við ekki um að íslenski hópurinn muni stækka enn meira á næsta fundi.