Blogg
30.08.2024
Eins og á öllum alvöru hátíðum þá verður boðið upp á hliðardagskrá á Haustráðstefnu Advania sem er með svokölluðu “off-venue” fyrirkomulagi sem Íslendingar þekkja svo vel. Frítt er á viðburðina en við biðjum þig að skrá þig svo við séum viss um að húsið nái að rýma alla.
Þó við séum á hliðardagskrá þýðir það ekki að það séu minni rokkstjörnur sem stíga þar á svið miðað við aðalsviðið. Við erum með allt frá yfirkerfisfræðingum til forstjóra sem ætla að kafa á dýptina og svara spurningum áhorfenda í sal. Að sjálfsögðu verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar enda erum við að ræsa eldsnemma um morguninn í mörgum tilfellum.