Ítarefni - DD.01.YYYY

Öruggara aðgengi Business Central

Þegar kemur að því að velja viðskiptahugbúnað fyrir fyrirtækið þitt, er öryggi eitt af mikilvægustu atriðunum sem taka þarf tillit til. Microsoft Dynamics 365 Business Central býður upp á öflugt og öruggt aðgengi að kerfinu, þar sem fjölþátta auðkenning (MFA) spilar lykilhlutverk í að tryggja að aðeins réttir aðilar hafi aðgang að viðkvæmum gögnum fyrirtækisins.

Kostir öruggs aðgengis í Business Central:

  1. Hámarksöryggi með fjölþátta auðkenningu:

    Með því að krefjast margra auðkenningarþátta við innskráningu, s.s. með lykilorði og viðbótarstaðfestingu, er áhættan á óheimilum aðgangi verulega minnkuð. Þetta skref tryggir að einungis viðurkenndir notendur geti nálgast kerfið, sem eykur öryggi gagna þinna.

  2. Vernd gegn persónuþjófnaði og tölvuárásum:

    Fjölþátta auðkenning gerir það mun erfiðara fyrir óviðkomandi að komast yfir innskráningarupplýsingar, þar sem þeir þurfa meira en bara lykilorð til að ná stjórn á reikningum. Þetta veitir fyrirtækinu þínu aukna vernd gegn persónuþjófnaði og öðrum ógnum.

  3. Sveigjanleiki og aðgengi hvar sem er:

    Þrátt fyrir aukið öryggi krefst Business Central ekki flókinna ferla til að vera aðgengilegt. Notendur geta auðveldlega skráð sig inn hvar sem er, hvort sem það er á skrifstofunni eða á ferðinni, með fullvissu um að gögnin eru örugg.

Hvernig er öryggismálum háttað í Business Central

Aðgangsmálum að Business Central er stjórnað með fjölþættri nálgun sem tryggir öruggan aðgang að kerfinu.

  1. Notendaleyfi:
    • Notendur Business Central þurfa að hafa úthlutað notandaleyfi til að geta skoðað, breytt eða unnið með gögn í Business Central. Einnig er hægt að notast við ákveðin Microsoft 365 leyfi fyrir þá sem aðeins þurfa takmarkaðan aðgang.
  2. Notendastjórnun:
    • Hver notandi verður að hafa notendareikning til að komast inn í Business Central. Notendur eru venjulega settir upp í Microsoft 365 stjórnendamiðstöðinni þar sem hægt er að bæta við notendum og úthluta leyfum samtímis.
  3. Öryggishópar:
    • Öryggishópa í Microsoft Entra ID er hægt að nota til að stjórna aðgangi að umhverfinu. Með því að úthluta öryggishópi fá aðeins beinir meðlimir hópsins aðgang að Business Central.
  4. Réttindi og heimildir:
    • Réttindi og heimildir leyfa fínstilltan aðgang að gögnum og hlutum innan hvers gagnagrunns eða umhverfis. Það er mögulegt að stjórna því hvort notendur megi lesa, breyta eða færa inn gögn.
  5. Fjölþátta auðkenning (MFA):
    • Notkun á Microsoft Entra ID fjölþátta auðkenningu er öflugasta leiðin til að bæta við öryggi í innskráningarferlinu fyrir Business Central. Með tvöfaldri auðkenningu er tryggt að notendur þurfi að lágmarki að skrá sig inn með lykilorði og annarri auðkenningu.

Þessi atriði tryggja að aðgangsmál séu öruggari en gengur og gerist og eykur vernd fyrir viðkvæm gögn fyrirtækisins.

Afritunartaka Microsoft á Business Central

Microsoft sér um öryggisafritun gagna fyrir Business Central með sjálfvirkum ferlum í gegnum Azure SQL Database. Hér eru helstu atriði um það hvernig þessu er stjórnað:

  1. Sjálfvirk afritun:
    • Sjálfvirk afritun er framkvæmd fyrir Business Central umhverfi á netinu af Azure SQL þjónustunni, sem viðheldur stöðugt þessum afritum. Þetta er hluti af neyðaráætlunum Microsoft til að vernda gögn gegn eyðingu.
  2. Varðveislutímabil:
    • Sjálfvirk afrit eru geymd í 28 daga. Á þessu tímabili geta stjórnendur endurheimt umhverfið til hvaða tímapunkt sem er, innan þessara 28 daga.
  3. Endurheimtarferli:
    • Stjórnendur geta endurheimt núverandi umhverfi frá fyrri tímapunkti með því að nota stjórnendamiðstöð Business Central. Endurheimtarferlið er takmarkað við innri og úthlutaða stjórnendur með ákveðin réttindi.
  4. Takmarkanir á svæðum og staðsetningu:
    • Endurheimt verður að fara fram innan sama Azure svæðis og lands/svæðis og upprunalega umhverfið. Þetta tryggir samræmi við reglur um gagnaaðsetu og staðsetningu.
  5. Takmörk á endurheimtum umhverfis:
    • Hvert umhverfi getur verið endurheimt allt að tíu sinnum í mánuði, og það eru sérstakar reglur um hvaða tegundir umhverfa (framleiðslu vs. sandbox) má endurheimta til hvers annars.

Þessi afritunar- og endurheimtarferli tryggja að Business Central umhverfi séu örugg og hægt sé að endurheimta þau fljótt ef gögn tapast eða ef önnur vandamál koma upp.

Aukið öryggi með þjónustusamningum

Að hafa Business Central þjónustusamning hjá Advania bætir gagnaöryggi með ýmsum hætti:

  1. Viðbragðstími og aðgengi: 
    Með þjónustusamningi hefurðu aðgang að þjónustuborði Advania sem tryggir fljót viðbrögð við öryggismálum. Þjónustuverið er til staðar til að bregðast við öllum málum sem upp koma, hvort sem þau tengjast öryggi eða rekstri.
  2. Reglubundið eftirlit: 
    Samningurinn felur í sér eftirlit með mánaðarlegum og árstíðabundnum uppfærslum frá Microsoft. Þetta tryggir að allar breytingar sem geta haft áhrif á öryggi kerfisins séu greindar tímanlega og unnið sé á réttu aðgerðum. Reglubundið eftirlit er valkvæð viðbót við þjónustusamninga.
  3. Afritunarþjónusta: 
    Með afritunarþjónustu er tekið reglulegt afrit af Business Central umhverfi hvers viðskiptavinar og það vistað á Azure Blob Storage, sem hjálpar til við að tryggja að gögn séu örugg og aðgengileg ef þörf krefur. Afritunarþjónusta er valkvæð viðbót við þjónustusamninga.
  4. Uppfærsluþjónusta: 
    Advania sér um nauðsynlegar uppfærslur á kerfinu til að tryggja að það fylgi nýjustu öryggisstöðlum. Þetta getur m.a. falið í sér uppfærslu á sérbreytingum til að samræmast nýjustu útgáfum Business Central. Uppfærsluþjónusta er valkvæð viðbót við þjónustusamninga.

Þessir þjónustuþættir stuðla að auknu öryggi gagna með því að tryggja að kerfið sé ávallt uppfært og undir eftirliti, sem minnkar líkur á öryggisbresti eða gagnatapi.

Uppfærslur og innleiðingar á Business Central á föstu verði

Advania býður upp á heildstæða þjónustu ráðgjöf sem er sniðin til að mæta þörfum fyrirtækja þegar kemur að innleðingum eða uppfærslum frá eldri útgáfum NAV/Business Central. Fast verðs pakkar innifela m.a.:

  1. Frí greining og umfangsmat á uppfærslu:
    • Viðskiptavinir fá ókeypis grunn-greiningu á núverandi bókhaldskerfi til að meta umfang uppfærslu. Fagfólk Advania fer í gegnum núverandi uppsetningu, metur þarfir og leggur fram tillögu og ráðgjöf vegna uppfærslu. Greining sem þessi býr til sameiginlega sýn á lykilþarfir og lykilferla á kerfinu og þörf fyrir sérskrif eða samþættingar við 3ja kerfi.
      • Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag.
  2. Fast verð fyrir staðlaðar gagnakeyrslur og uppsetningar:
    • Gagnakeyrsla innifelur flutning á öllum standard gögnum frá núverandi kerfi, fyrir utan sérlausnir og sérbreytingar frá 3ja aðila. Fast verð er í boði fyrir NAV/BC útgáfur 2016 og nýrri útgáfum. Jafnframt býður Advania upp á uppsetningu og kennslu á stöðluðum viðbótum á föstu verði. Með föstu verði fá viðskiptavinir betri sýn á umfang verkefna. Advania tryggir að allar gagnakeyrslur og uppsetningar séu framkvæmdar með hágæða þjónustu og nákvæmni í fyrirrúmi.
      • Fyrir eldri útgáfur af NAV þarf að meta umfang sérstaklega.

Þessi þjónusta er tilvalin fyrir fyrirtæki sem vilja tryggja að kerfi þeirra séu ávallt uppfærð og í takt við nýjustu tækni og öryggisstaðla, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af breytilegum kostnaði eða óvissu varðandi framkvæmd. Með Advania sem samstarfsaðila fá fyrirtæki ekki aðeins aðgang að sérfræðiþekkingu heldur einnig öryggi í þeirri vitneskju að verkefnin eru í góðum höndum. Við leggjum metnað okkar í að veita viðskiptavinum okkar þá bestu mögulegu upplifun.

Fleiri fréttir

Fréttir
17.02.2022
Þekking á stafrænni markaðssetningu og netöryggi er stórlega ábótavant hjá stjórnendum, samkvæmt könnun sem gerð var af Stafræna hæfniklasanum í lok ársins 2021.
Fréttir
16.02.2022
Advania hefur fest kaup á finnska upplýsingatæknifyrirtækinu Valtti. Um er að ræða öflugt félag á finnska markaðnum sem sérhæfir sig í rekstrarþjónustu og skýjalausnum.
Fréttir
07.02.2022
Fylgjast má með veðrinu í beinu streymi frá vefmyndavél sem Advania hefur komið fyrir í gluggakistu á höfuðstöðvum fyrirtækisins í Guðrúnartúni í Reykjavík.
Fréttir
04.02.2022
Advania hlaut í dag viðurkenningu frá Microsoft fyrir að vera samstarfsaðili ársins 2022. Tilkynnt var um verðlaunin í gær á fögnuði með samstarfsaðilum Microsoft sem haldinn er árlega í Danmörku.
Fréttir
02.02.2022
Eftir að starfsfólki Advania bauðst frí afnot af rafskutlum Hopp á vinnutíma, hefur starfsmannaflotinn verið óstöðvandi á skutlunum. Notkunin hefur bara aukist í vetur og einkabílanotkun hefur dregist saman.
Fréttir
02.02.2022
Öflugur hópur sérfræðinga hefur gengið til liðs við Advania til að stýra viðskiptaþróun veflausna fyrirtækisins. Fyrir teyminu fer Birgitta Ósk Rúnarsdóttir sem hefur víðtæka reynslu úr hugbúnaðar- og fjármálageiranum.
Fréttir
27.01.2022
Met þátttaka var á veffundi Advania um hlutverk og vægi stafrænna leiðtoga. Fundurinn fór fram á dögunum en hátt í 600 manns fylgdust með honum og tóku þátt í umræðum. Augljóst er af viðbrögðunum að dæma, að hlutverk stafrænna leiðtoga enn í mótun á mörgum vinnustöðum.
Fréttir
10.01.2022
Átta spurningar sem allir stjórnendur og stafrænir leiðtogar ættu að spyrja sig.
Blogg
05.01.2022
S4S opnaði nýlega glæsilegan vef sem sameinar fimm vefverslanir fyrirtækisins undir einni verslun. Vefurinn var þróaður af veflausnum Advania og hér er fjallað um helstu atriði sem stuðla að góðum árangri hans.
Fréttir
22.12.2021
Advania, NTV og Promennt hafa tekið höndum saman til að vekja athygli kvenna á kerfisstjórnun. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu en hingað til hafa karlar verið í miklum meirihluta þeirra sem sinna starfinu.
Fréttir
20.12.2021
Advania hefur keypt norska fyrirtækið Painkiller sem sérhæfir sig í ráðgjöf og hugbúnaðarlausnum á sviði öryggis í upplýsingatækni.
Fréttir
14.12.2021
Upplýsingatæknigeirinn er í stöðugri þróun og þar eru fjölmörg atvinnutækifæri fyrir fólk af öllum kynjum. Við hjá Advania viljum auka fjölbreytni í stéttinni og leiðrétta kynjahallann sem ríkt hefur hingað til.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.