Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Fréttir - 13. nóvember 2026Rekstrartruflun hjá Microsoft hefur áhrif á Outlook og fleiri þjónustur
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Microsoft hefur tilkynnt um umfangsmikið rekstraratvik í Microsoft 365-þjónustum sínum sem hefur áhrif á notendur víða um heim. Truflunin hefur meðal annars áhrif á Microsoft Outlook og Exchange Online, en einnig geta komið upp vandamál við notkun á öðrum þjónustum Microsoft, svo sem Teams, SharePoint og Microsoft 365 Copilot.
Afleiðingar rekstraratviksins geta meðal annars verið að notendur nái ekki að tengjast tölvupósthólfum sínum, sending og móttaka tölvupósts tefjist eða aðgengi að einstökum eiginleikum annarra Microsoft-þjónusta sé skert.
Microsoft vinnur nú að greiningu og viðgerð á biluninni og hefur gripið til aðgerða til að endurheimta þjónustuna. Ekki liggur enn fyrir hvenær fullri virkni allra þjónusta verður náð.
Advania fylgist náið með framvindu málsins og stöðu þjónustunnar og mun upplýsa viðskiptavini um frekari þróun eftir því sem tilefni er til. Viðskiptavinum er bent á að fylgjast með þjónustustöðusíðu Microsoft fyrir nýjustu upplýsingar um rekstraratvikið.
Vöktun öryggisþjónustunnar Skjaldar er virk og hefur að mestu ekki orðið fyrir áhrifum. Gögn og viðvaranir sem tengjast tölvupósti og vörnum í Defender for Office 365 geta þó borist seinna en venjulega á meðan truflunin varir.