Þórður Ingi Guðmundsson forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania skrifar hugleiðingar um gervigreind.

Blogg - 7. maí 2026

Tækifærin framundan með gervigreind

Þórður Ingi Guðmundsson
forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania

Þessa dagana snýst umræða um gervigreind mikið um það hvaða störf eru að verða úrelt og hvar fyrirtæki geti mögulega skorið niður og sparað stöðugildi. Þó það sé sannarlega eitthvað sem er mikilvægt að vera með augun á, þá segir það bara hálfa söguna.

Þegar tæknibyltingar eiga sér stað gleymist oft að þó margt sem við þekkjum í dag verði orðið úrelt á morgun, sum störf breytist eða jafnvel hverfi, verður á sama tíma til nýtt viðmið um virði. Eitthvað sem okkur órar ekki fyrir í dag verður hægt á morgun og í leiðinni nýjar aðferðir til vaxtar og verðmætasköpunar sem aftur leiðir til nýrra og breyttra starfa.

Eitt dæmi um slíkt er þegar bíllinn var fundinn upp. Þá óraði eflaust engum fyrir því hversu mörg störf og  verðmæti yrðu til í framhaldinu. Bensínstöðvar, umferðamannvirki, tryggingar og bílaleigur litu dagsins ljós svo dæmi séu nefnd. Störfin við að sinna hestunum hurfu vissulega en á móti sköpuðust mun fleiri og verðmætari störf fyrir samfélagið, svo ekki sé minnst á allt það sem bíllinn gerði fyrir samfélagið í heild sinni, líkt og betri og ódrýari vöruflutningar, ferðalög og margt fleira sem skapaði enn meiri verðmæti.

Hver er raunverulegi ávinningurinn?

Sama þróun er að eiga sér stað núna þar sem margt af því sem við eigum að venjast í dag mun koma til með að breytast, en á móti verða til tækifæri sem við getum ekki ímyndað okkur fyrr en við sjáum þau. Fyrirtæki sem nálgast gervigreind í gegnum mjög þröngt sjónarhorn, til dæmis einungis til að spara kostnað, eru líklegri til að missa af stærstu tækifærunum sem umbyltingin mun hafa í för með sér, að endurhugsa hvernig þau skapa virði. Í samlíkingunni hér að ofan þá væri það eins og að halda áfram að nota bíla eins og við höfðum notað hestakerrur í staðinn fyrir að breyta því hvernig við notum tækið, hraðann sem við keyrum á með tilheyrandi uppfærslum á vegum og mannvirkjum til að styðja við fulla nýtingu.

Þegar gervigreind er innleidd er þess vegna mikilvægt að horfa ekki eingöngu til einstakra verkefna sem eru unnin í dag og reyna að koma þeim inn í gervigreindartól. Mesta virðið fæst með því að horfa til áskorana og tækifæra fyrirtækisins í heild sinni til að átta sig á því hvar raunverulegur ávinningur liggur til lengri tíma.

Hvað getur þú gert í dag sem ekki var hægt fyrir ári síðan, eða í síðasta mánuði?

Fleiri fréttir

Fréttir
17.05.2021
Dynamics 365 hópur Advania hefur að undanförnu unnið með Eimskip að nýjum þjónustuvef fyrir TVG Zimsen. Á vefnum geta viðskiptavinir skráð sendingar og fylgst með afhendingu þeirra. Í verkefninu er það nýjasta úr Microsoft-fjölskyldunni nýtt með öflugum hætti.
Fréttir
11.05.2021
Advania hefur samstarf við danska ráðgjafar- og þjónustufyrirtækið Pingala sem er sérhæft í Dynamics 365. Með samstarfinu eflist þjónusta við viðskiptavini Advania í innleiðingum á viðskiptakerfum.
Fréttir
06.05.2021
Nýlega fór að bera á villum við notkun nýrra fartölva, frá mörgum framleiðendum, með Intel Iris XE skjástýringum með tengikvíum sem byggja á DisplayLink tækni.
Fréttir
29.04.2021
Árið 2020 var gott ár í rekstri Advania þrátt fyrir þær óvenjulegu áskoranir sem heimsfaraldurinn hafði í för með sér. Tekjur fyrirtækisins drógust lítillega saman milli ára en afkoma batnaði verulega.
Fréttir
16.04.2021
Fyrsta stafræna Haustráðstefna Advania hlaut tvennar tilnefningar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna sem veitt verða á uppskeruhátíð auglýsingageirans.
Blogg
25.03.2021
Það er áhugavert að velta því upp hve margt eigi eftir að breytast í heiminum þegar fólki hefur verið rétt einföld tól til að smíða lausnir sem auðveldar dagleg störf þeirra
Fréttir
25.03.2021
Spjallmennið Sóley hefur tekið til starfa hjá Ferðamálstofu og getur liðsinnt fólki um flest það sem varðar þjónustu stofnunarinnar. Sóley stendur vaktina allan sólarhringinn og býr yfir leiðandi tækni í málgreiningu.
Fréttir
23.03.2021
Advania hlaut tvær tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna sem veitt eru af Samtökum vefiðnaðarins.
Blogg
18.03.2021
Sveigjanleiki og valfrelsi starfsfólks er lykilatriði. Fólk ætti að geta valið dag frá degi hvort það nýti sér þá aðstöðu sem vinnustaðurinn býður uppá eða leiti heim, á kaffihúsið eða í hverja þá aðstöðu sem hentar verkefnunum hverju sinni.
Fréttir
12.03.2021
Hinrik Sigurður Jóhannesson er nýr framkvæmdastjóri mannauðs og ferla hjá Advania og Sigrún Ósk Jakobsdóttir hefur tekið við sem mannauðsstjóri. Fleiri öflugir sérfræðingar hafa gengið til liðs við Advania að undanförnu og eru fimmtán spennandi störf hjá fyrirtækinu laus til umsókna.
Blogg
09.03.2021
Hvað höfum við lært um ráðningaferli á árinu 2020? Hvernig tókust fyrirtæki á við áskoranir ársins og hvernig ætla þau að nýta þann lærdóm 2021? Hvernig aðlagast vinnustaðir breyttri menningu í ráðningum og hvernig verður vinnuframlag metið?
businesscentral.advania.is, Blogg
18.02.2021
Flestir Íslendingar þekkja til Heathrow flugvallar í Bretlandi. Varla annað hægt enda einn af stærri tengiflugvöllum í Evrópu ásamt því að vera einn af nokkrum alþjóðaflugvöllum nálægt London. Borg sem fótbolta- og tískuþyrstir Íslendingar sækja heim margoft á ári. Já, svona þegar ekki geisar heimsfaraldur.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.