F&O - DD.11.YYYY
Takk fyrir samfylgdina, Elín og Kristín
Gunnur Jónsdóttir
Forstöðumaður, Viðskiptalausnir
Eftir farsælan starfsferil kveðja þær Elín M. Lýðsdóttir og Kristín Þorkelsdóttir Advania, en báðar hafa starfað hjá félaginu og fyrri félögum í yfir tvo áratugi. Með starfslokum þeirra lýkur merkum kafla og við þökkum þeim innilega fyrir dýrmætt framlag og góða samfylgd í gegnum árin.
Á löngum starfsferli hafa Elín og Kristín lagt sitt af mörkum til þeirrar þekkingar, reynslu og liðsheildar sem einkennir starfsemi okkar. Samstarfsfólk og viðskiptavinir hafa notið góðs af reynslu þeirra og tryggð við verkefnin.
Við óskum Elínu og Kristínu hjartanlega til hamingju með þessi tímamót og velfarnaðar á nýjum kafla. Um leið færum við þeim bestu þakkir fyrir samstarfið, minningarnar og allt sem þær hafa lagt til Advania í gegnum tíðina.